Sunnudagur og börnin í mat.

Ég trúði ekki mínum eigin augum þegar ég vaknaði, kl. var 09.15. Mjög óvenjulegt að ég sofi svona lengi, en!!!það sem enn merilegra var að Gabriel svaf líka og sefur enn og kl. orðin 10.00. Hann ætlaði að fara að kafa í morgun, þá fer hann úr húsi kl 08.00, en sefur svona vært að ég læðist um til að vekja hann ekki. Augljóslega orðin langþreyttur.

Ég er búin að bjóða strákunum og kærustu Gaua í mat í eftirmiðdaginn. Ætla að herma eftir fíkjusalatinu góða sem ég fékk um daginn á veitingahúsi. Grafinn lax og eitthvað fleira smátt verður í forrétt. Síðan ætla ég að hafa ítalskan rétt úr bókinni góðu sem ég minntist á um daginn. Þetta er líka réttur sem ég hef gert síðan strákarnir voru litlir og halda mikið upp á.

Ég hnoða nautahakk með kryddi og smá hveiti, hnoða mjög vel, rúlla því svo út eins og rúllutertu, set skinku, ost og músaðar kartöflur (kartöflurnar hreinar, þ.e. áður en ég geri hefðbundna kartöflumús). Rúlla svo upp hakk kökunni og loka vel endunum. Blanda saman tómatfrito/tómatpúrru, ólífuolíu og smá vatn. og kryddum+nokkrum lárviðarlaufum. Hita þetta á góðri pönnu eða stórum potti og set rúlluna í. Með skeið set ég sósu á alla rúlluna og síðan læt ég hana malla ca. 45 mín. Með hef ég góða kartöflumús og stundum snöggsoið grænmeti, t.d. gulrætur og brokkolí. 

Ég skal setja inn uppskriftina seinna í dag eða á morgun. Í gær gerði ég hunangsolíu til að setja á salatið í dag. Rennandi hunang, jómfrúr oliu og smá Balsamik edik. Spennt að sjá hvernig þetta kemur út.

Gaui er komin í kaffi, Gabriel vaknaður og ég ætla að sinna þeim. 

Fært undir Matur.

Ein ummæli við “Sunnudagur og börnin í mat.”

  1. Sigga systir ritaði:

    Hæ snúlla !!
    Ég fæ vatn í munninn yfir öllum þessa góða mat sem þú gerir. Vildi óska að ég hefði fengið smá hluta af þessum frábæru matseldisgenum og myndarskap þínum. En ok. verða bara að sætta mig við það.
    Allt gott af Fróni verið smá væta en hún var mjög kærkomin enda líður mér aldrei betur en í íslensku rigningarveðri. Loftið er svo unaðslegt tært. Og svo fylgir jú haustinu okkar kertatíminn sem við njótum ekki yfir sumartímann. Þá sér blessuð sólin og birtan um að lýsa um kvöldin. Allar árstíðir hafa sinn sjarma hér í norðrinu.
    Bestu kveðjur til ykkar allra og farðu nú að gefa út matreiðslubók stelpa svo að litla systir geti prufað eitthvað af þessum gómsætu réttum þínum.
    Kossar og knús :) :) Sigga.