Litla systir 50 ára!!!
21. apríl 2008 — spanjolaSigga litla systir mín, situr úti í götu…Svona hefst skemmtileg vísa sem mikið var sungin á mínu heimili og þá meina ég ekki bara í foreldrahúsum heldur líka þegar ég var með strákana litla.
En Sigga litla systir mín er 50 ára í dag, til hamingju dúllan mín. Hún heldur upp á afmælið í Kaupmannahöfn og hefur það örugglega mjög skemmtilegt.
Það er líka þjóðhatíðardagur Stóra Bretlands í dag. Drottningin fæddist þennan dag, en opinber afmælisdagur hennar er 14. júní sem er afmælisdagurinn minn. Svo við systur tengjumst Bretlandi ansi vel.
Er á leiðinni heim úr vinnu og ætla að eiga rólegt kvöld, gráta yfir mynd sem ég veit ekki hvað heitir á ensku né íslensku, en er víst nokkuð þekkt og mjög sorgleg.
Hasta luego.
21. apríl 2008 kl. 23.32
Til hamingju með afmæli litlu systur. Isabella Friðriks-Danakrónprins-dóttir er eins árs í dag svo að Sigga er meðal konungborinna og flaggað fyrir báðar í Köben í dag. Til hamingju líka með mömmu um daginn. Bkv.
22. apríl 2008 kl. 8.53
Takk fyrir.
Til hamingju með allar, og mömmu þína líka.
22. apríl 2008 kl. 23.25
til hamingju með litlu systir… og knús til ykkar beggja.
Sigga ligga lá (einn uppáhalds teiknimyndaþátturinn hennar Töru heitir það
25. apríl 2008 kl. 13.19
Til hamingju með Siggu litlu systir, Kristín mín.
Sigga, til hamingju með þennan merka áfanga.
26. apríl 2008 kl. 21.21
Takk takk Magga mín.
Er alveg að ná ykkur vinkonunum þér og “stóru” systur.
Hafðu það sem allra best.
Kv. Sigga